Uppbygging framundan á Hellu

Þetta viðtal við Guðmund Ágúst Ingvarsson formann GHR birtist á vefmiðlinum www.kylfingur.is föstudaginn 29. apríl 2022. „Við tökum vel á móti öllum á Strandarvelli, “ segir Guðmundur Ágúst Ingvarsson, formaður GHR í stuttu spjalli. „Það er margt að gerast hjá okkur á Hellu og við stefnum að frekari framkvæmdum og fjölgun félaga,“ segir Guðmundur Ágúst […]

Frá vallarstjóra GHR

Kæru félagsmenn,Skv. Dagatalinu er sumarið sannarlega mætt á grjóthólmann okkar fagra. Lóan og Lundinn farin að hreiðra um sig og dagarnir loksins komnir í mannsæmandi lengd. Því fögnum við hér á Strandarvelli og eru vorverkin þegar hafin og mikill hugur í öllum þeim sem koma að starfsemi GHR. Það eru mörg verk sem þarf að […]

Úrslit í fyrsta móti sumarsins

Þórir Bragason skrifarVorkomumótið fór fram í gær í blíðskapar veðri. Keppnin var hörku spennandi og þurfti að skilja á milli tveggja efstu með árangri á síðustu þremur holunum. Það reyndist undirrituðum dýrt að þurfa að taka víti úr runna á sextándu braut þannig að Heimir Hafsteinsson endaði sem sigurvegari á 71 höggi nettó. Í þriðja […]

Ný vefsíða GHR komin í loftið

Í tilefni 70 ára afmælis klúbbsins á þessu ári þá ákvað stjórn að uppfæra vefsíðu GHR.Nýja síðan er komin í loftið en enn á eftir að bæta inn meira efni og laga hnökra en það mun gerast næstu daga.Endilega skoðið nýju síðuna www.ghr.is. Gleðilegt sumar!

Fyrsta mót sumarsins – Vorkoman er laugardaginn 23. apríl

Þórir BragasonSæl. Við viljum minna á vorkomu mótið á laugardaginn kemur kl. 13.00. Veðurspáin er góð og vonandi verður búið að taka nýjar holur. Nefndin hefur í samráði við formann ákveðið að blása ekki til móts 1. maí en skoðum það mótahald til framtíðar. Lancome kvennamótið fer hins vegar fram 14. maí. M-mótin byrja svo […]

Nýr formaður GHR Guðmundur Ágúst Ingvarsson

Föstudagur, 29. október 2021 – 11:54 Nýr formaður GHR Guðmundur Ágúst Ingvarsson Aðalfundur GHR var haldinn fimmtudaginn 28.okt. 31 mættu á fundinn. Fundarstjóri var Bjarni Jónsson Breytingar urðu í stjórn, Óskar Pálsson formaður til 21 árs og Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir gjaldkeri til 21 árs gáfu ekki kost á sér. Nýr formaður er Guðmundur Ágúst Ingvarsson […]

Lokahóf sumarsins

Lokahófið okkar fór fram í kvöld. Veitt voru verðlaun fyrir Hótel – Arkarmótið, Samverksmótið og holukeppnina. Margrét Harpa útbjó dýrindis mat fyrir okkur með aðstoð Jóhanns.

Andri Már sigraði

Andri Már Óskarson sigraði í dag í keppni um Hvaleyrarbikarinn á 6 höggum undir pari. Glæsileg spilamennska hjá okkar manni. Innilega til hamingju

Meistaramót 2021

Meistaramóti GHR lauk í gær. Klúbbmeistarar 2021 eru Andri Már Óskarsson og Guðný Rósa Tómasdóttir. Við óskum þeim og öllum sem sem sigruðu í sínum flokkum innilega til hamingju. Takk fyrir skemmtilegt mót